Opinber og OPINBER!

Já kallauminginn, orðinn berstrípaður á toppnum.

Ef ég skil umræðuna rétt, er Kaupa-Pétur að rembast við að verja einn af þremur bankastjórum Seðlabanka. Honum er alveg sama um hina þá eða hvað? Hvers vegna er þetta fruss og tafs út úr ræðumönnum sjálfstæðismanna í þinginu núna. Þetta sá maður aldrei fyrir stjórnarskiptin. Nú liggur allt í einu svo mikið við að nauðsynlegt er að beita málþófi Davíð Oddssyni til varnar. Maður verður mjög hugsi yfir þessum óskapa látum þótt þurfi að víkja einum ónothæfum starfsmanni frá. Þetta er sífellt að gerast hér og þar um víða veröld.

Ég held að óhætt sé að fullyrða að aldrei á sögulegum tíma, hafi nein persóna orðið eins mikill örlagavaldur íslensku þjóðarinnar og Davíð Oddsson. En þetta var útúrdúr.

Kannske er þó Davíð ekki eins slæmur starfsmaður og sumum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins fannst meðan plussið gældi við rasskinnarnar. Allavega vörðu og verja sumir hann eins og hann sé þeirra einkabarn og hafi aldrei gert neitt misjafnt. Hlálegt að heyra eftir stjórnarskiptin hvað margir þingmenn íhalds höfðu boðið höfuð Davís í skiptum fyrir plussið undir rassgatið.

Ef til vill var Davíð góður verkstjóri yfir tindátum sínum í Sjálfstæðisflokknum, en að sama skapi hefur hann ekki þótt jafngóður verkstjóri yfir þúsund-og fimmþúsundköllum landsmanna.

Það er auðvitað alltaf matsatriði hvað eigendum bréfpeninga finnst um afdrif síns fjár, en þó er eins og einhvernveginn sé vaxandi meðvitund með þjóðinni að betur hefði mátt fara með seðlabúntin sem voru orðin til, öllum að óvörum "nema sjálfskipuðum fjármálasnillingum" sem fengu ómæld seðlabúnt á mörgum færiböndum, mánuðum saman út úr gömlu ríkisbönkunum og svo þegar þeir voru þurrausnir, út úr Seðlabanka Íslands.

Athugið það að þeir eru enn að senda skjalaskot þvers og kruss um víða veröld í leit að tryggum felustöðum fyrir óheilbrigð undanskot.

Hver var gjaldkeri bankanna þessa daga sem útfallið varaði? Það er augljóst að það var sá sem stjórnaði bögglauppboðinu á gömlu ríkisbönkunum og útbjó síðan lagarörið sem gerði skyttum framsóknar og íhalds kleift að þeyta skjalavöndlum hist og her um heiminn, þveran og endilangan. Öllum að óvörum situr hann enn jafnvel þó stór hluti tindáta íhalds í þinginu vilji og hafi lengi lýst því yfir að þau vilji hann burt. Vandinn er sá að Hrókurinn hefur eitthvað illyrmislegt tak á sumum þessara titta sem verja hann með kjafti og klóm. Sú vörn er orðin þjóðinni svo fokdýr að ekki verður við unað.

Hver samdi og samþykkti þau lög sem þarna áttu að gilda?
Það er svo morgunljóst sem sólin kemur upp að morgni, að Kaupa-Pétur var fyrstur manna til að samþykkja alla heilu vitleysuna. Lækkun bindiskyldu, sjónhverfingar með gjaldeyrisvarasjóð og auðvitað var Kaupa-Pétur einn aðal hvatamaður að því að samþykkja þessi hryðjuverkalög yfir almenning í þessu landi. Undan því getur hann aldrei vikist.

Ég vil aðeins gera grein fyrir nafnbótinni Kaupa-Pétur.

Kaupþing var fyrirtæki sem höndlaði með allskyns pappíra hér fyrir margt löngu. Mér eru minnisstæðir tveir sjóðir með sama nafni, aðgreindir með númerum 1 og 2. Ef ég man rétt, var þetta kallaður verðbréfasjóður Kaupþings. (Ég vona a ég muni nöfnin rétt.) Áramótaglaðningar viðskiptavina Kaupþings Péturs voru alla jafnan þau sömu. "Því miður var neikvæð ávöxtun á ?????? sjóði árið ???? Inneign þín er ?????? eftir atvikum eftir því hvað hver og einn lagði í hítina. Svo langt man ég að miðað við 10.000 kr. greiðslu á mán. í 12 mán.=120.000 á ári, var inneign viðkomandi heilar 100.500.- kr og jafnvel þaðan af minna. Pétur hafði samt himinháar tekjur sjálfur, svo háar að hann treystir sér til að lifa af 25.000.- kr. launum á mánuði.

 Og svo er Kaupa-Pétur froðufellandi í ræðustól Alþingis, röflandi, já ég segi röflandi yfir því að halelújakór Valhallar skuli ekki vera stærri og háværari en raun ber vitni, verjandi málstaðinn, verjandi Kaptein Krók.

Það skondnasta við allt þetta er síðan fyrirsögn fréttarinnar. Ég segi bara Hahaha hvernig getur Pétur Blöndal lagst svona lágt.

Kaupa-Pétur: Tími Davíðs, tími nýfrjálshyggju, tími einkavinaplotts, tími höfðingjapólitíkur á Íslandi er liðinn. Að sinni í það minnsta og vonandi um ókomna tíð.


mbl.is Pétur Blöndal ákallar Ögmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég sá einhversstaðar ágætis hugmynd um hvernig mætti leysa þetta mál og nota með því hans eigin aðferðir.

Leggja niður seðlabankann á föstudegi - stofna svo nýjan seðlabanka á mánudegi og ráða nýjan mannskap.

Mér þótti þetta ekkert slæm hugmynd.......

PS hvernig gekk briddsmótið?

Hrönn Sigurðardóttir, 7.2.2009 kl. 12:07

2 Smámynd: Þórbergur Torfason

Einmitt það er aðferðin Hrönn. Þetta er verið að gera svo víða til að losna við svona kóna sem enginn vill gangast við.

Briddsmótið er ekkert búið, það verður ekki fyrr en 28.-29. mars. Þú hefur nægan tíma til að koma þér á svæðið og vertu velkomin.

Þórbergur Torfason, 7.2.2009 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband