Svo mörg vor þau orð.

Hörð skoðanaskipti milli íhalds og krata eru frekar til þess fallin að rýra möguleikann á þjóðstjórn  heldur en skammarræður Steingríms sjálfs úr ræðustóli Alþingis undanfarin kjörtímabil. Er Steingrímur þarna að benda á að orð hans vegi mikið minna en orð annarra stjórnmálamanna eða er Steingrímur að segja að honum leyfist að gagnrýna en öðrum ekki.

 Þjóðstjórn er og verður í nánustu framtíð ein allsherjar þvæla. Íhald fársjúkt, Samfylking dauðvona, Framsókn handstýrt af flokkseigendunum, Frjálslyndir týndir, og Vinstri Grænir komnir í ystu þolmörk. Sko ég er ekki að vísa í veikindi formanna flokkanna, ég er einfaldlega að lýsa skoðun minni á ástandinu.

Ég vil utanþingsstjórn til 30-45 daga. Kosið verði um miðjan mars skilyrðislaust. Ekkert beðið eftir landsfundum eða öðrum sellusamkomum. Bara drífa kosningar af.


mbl.is VG leggur línurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Utanþingsstjórn má sitja miklu lengur

Hólmdís Hjartardóttir, 27.1.2009 kl. 01:10

2 Smámynd: Þórbergur Torfason

Veit en alls engin nauðsyn.

Þórbergur Torfason, 27.1.2009 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband