12.11.2008 | 00:53
Mig langar að velta aðeins fyrir mér Evrópusambandinu.
Hvað er Evrópusambandið?
Svar! Allavega í mínum huga. Evrópusambandið samanstendur af 27 Evrópuþjóðum, hverri með sína sögu. Bak við þessar þjóðir standa 27 ríkisstjórnir og bak við hverja þeirra 6-10 stjórnmálaöfl. Það er vitað að óeining er innan sambandsins, meðal annars mikil ólga í ríkjum Suður Evrópu vegna verðlagsþróunar á neysluvörum. Okkur væri hollt að kynna okkur þróun verðlags í þessum löndum og þá helst að grafast fyrir um ástæðuna fyrir verðhækkunum.
Ég velti fyrir mér hvaða erindi við Íslendingar eigum í þetta "samband". Ég spái því að það verði sprungið innan 10 ára. Er eftirsóknarvert að vera þáttakandi í að reka milljónaborg (Brussel) sem er full af bírópennavopnuðu fólki sem er á ofurlaunum við að semja einhverja dellu sem þessar aumingja þjóðum er gert skylt að undirgangast. Það er reyndar vitað, og hefur verið í nokkur ár að regluverk Evrópusambandsins er miklu virkara hérlendis en hjá aðildarþjóðunum. Ef grannt er skoðað, heyrir til undantekninga ef þessar reglur eru virtar.
Mér finnst óhugsandi að fara þarna inn og þurfa að undirgangast þær kvaðir sem lagðar eru á þessar þjóðir, allavega þær sem eru virtar og virkar.
Við erum ein auðugasta þjóð í heimi og það að afsala okkur þeim auði, haugsugum eins og Mið Evrópuþjóðunum er ekki kostur sem við eigum að velta fyrir okkur. Við eigum að virkja okkar auðlindir sjálfir.
Við eigum að henda okkar handónýtu ríkisstjórn og öllum hennar viðhengjum, kjósa nýtt þing að fenginni biturri reynslu og láta okkur að kenningu verða gjörspillta stjórnmálamenn og ekki gleyma viðgjörningi framsóknarflokksins í þeirri veislu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki beint vísindaleg og efnisleg rök hjá þér.
En ég hugsa að ef aðild að evrópusambandinu sé skoðuð kallt án fordóma og pólitískrar tengingar sé hægt að finna fleiri kosti með inngöngu.
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 12.11.2008 kl. 01:10
Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég er ekki sprenglærður vísindamaður í fræðum Evrópusambandsins en ég verð samt að segja að málflutningur margra halelújakallaranna virkar á mann eins og skrumið sem hefur oltið út úr talsmönnum greiningadeilda bankanna sáluðu á undanförnum árum. Það var góð samlíking hjá Jóhannesi Birni í Silfri Egils þegar hann líkti greiningadeildunum við auglýsingastofur. Á sama hátt virkar jarmið í Evrópusmbandssinnum á mig eins og keyptar auglýsingar.
Mín sannfæring er algjör. Ekkert Evrópusamband innfyrir mín landamæri.
Þórbergur Torfason, 12.11.2008 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.