26.8.2009 | 11:23
Ótrúlegar sjónhverfingar
hjá þessum mönnum. Framferði þessara spilafíkla hefur valdið mörgum fjölskyldum gjaldþroti, gjaldþroti sem þær hafa hreint ekki átt nokkurn minnsta þátt í. Svo gapa þessir uxar um stærsta skell hér og þar. Þeir rændu þjóðina um hábjartan dag og liggja svo grenjandi eins og fáráðlingar og kenna öllum öðrum um. Hvað eiga þessir skrumarar að ganga lengi lausir, ég bara spyr mig? Á ég að þurfa að taka af skarið og fletta niður um þessa menn og flengja þá opinberlega með eigin hendi? Ég er tilbúinn í það og ég veit að ég fengi dygga aðstoð við að rykkja niður um þá brókunum svo eftirleikurinn verði auðveldari. Það eiga þeir svo sannarlega skilið svo margir landar þeirra hafa misst allt niður um sig.
Ég ráðlegg þessum spilasjúklingum að snarast hér inn fyrir 200 mílurnar með allt sitt hafurtask, leggja það inn í einhvern bankann okkar og skella sér svo í meðferð að hætti þeirra sem hafa uppgvötvað að það er líf eftir síðasta fyllerí.
Fengum langmesta höggið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Rétt ekki má sína þessum mönnum neina linkind stór þjófar sem ganga lausir
Sigurður Haraldsson, 26.8.2009 kl. 11:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.