E S B

Í allri umræðunni um aðildarviðræður við ESB gleymist líklega hið nærtækasta í öllu málinu sem er kostnaðurinn við viðræðurnar.

Fyrir nokkrum mánuðum kvittaði fyrrverandi utanríkisráðherra upp á reikning fyrir hönd þjóðarinnar að upphæð 1,2 milljarðar. Sá reikningur var til kominn vegna atorku og ódrepandi dugnaðar nokkurra fyrrverandi utanríkisráðherra þjóðarinnar við að reyna að komast í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.

Með hliðsjón af þeim reikningi þar sem allmargir opinberir starfsmenn þeystu um grundir erlendra ríkja til að "afla fylgis" við bröltið, þykir mér einsýnt að kostnaður við aðildarviðræður sem munu að minnsta kosti taka 5 ár verða í það minnsta 2,5-3,5 milljarðar.

Mín skoðun er sú að nær væri að láta þessa útrásardraumavíkinga hafa eitthvað annað verkefni en að véla um þjóðmálin.

Ég hef bara ekki efni á að halda svona herdeild uppi í einn dag hvað þá allt að 5 ár, en þú?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

góður punktur.

zappa (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 00:45

2 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Sæll félagi. Ert þú ekki að bera saman ,,perlur og svín": Annars vegar mont og mikilmennskuverkefni sem stofnað var til af tvíeykinu Dabba og Dóra og hins vegar nauðsynlegu brölti til að komast eitthvað í áttina að því að gera Ísland byggilegt fyrir unga fólkið. Ekki aftur, því efnahagshörmungarnar núna eru ekki annað en lokapunkturinn í ferli sem staðið hefur yfir í áratugi.

Bestu kv. (Er löngu hættur að reykja vindla!)

Ingimundur Bergmann, 31.5.2009 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband