Pólitískir orðaleikir.

Nú er aldeilis líf í tuskunum öllum sótröftum á flot hrundið og áralagið æft. Getur verið að stuttbuxnaliðið í borginni hafi reynt að mynda sms meirihluta með VG stelpunni. Þetta hljómar líkt og heimavistarskólabrandari. Sögur herma þó að þau hafi laumað sér á fund formanns flokksins, að leita leyfis að bjóða stelpunni borgarstjórastólinn og skilja Villa eftir útundan. Ég bíð spenntur eftir ævisögu Svandísar Svavarsdóttur fyrr verður ekki upplýst hver var svo gikkóður á gemsanum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband