28.12.2007 | 21:18
Þar fór það!
Þá er úti um þá von hjá manni. Andsk. meðferð á traustum (viðskipta)vini. Og ég sem hélt að ég kæmist loksins á boðslistann eftir 33. ára taumlausa þjónkun. Kannske lækka þeir bara útlánsvextina á mér í staðinn og koma meira jafnvægi á vaxtamuninn. Vona allavega að fyrst við þurfum ekki að borga kokteilinn og pinnamatinn oní dýrtseldustu kúnnana, skili þetta aðhald sér í betri kjörum til okkar almennra rekstraraðila þessarar lánastofnunar.
Megi Guð láta gott á vita. Ég hef ekki oft fengið heppilegri jólagjöf.
Engin nýársveisla hjá Glitni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Til lukku með jólagjöfina Þórbergur!
Ég segi það sama, lækki vextirnir hjá mér, þó ekki nema um prómil, þá er það dýrasta jólagjöfin í ár!
Sigurpáll Ingibergsson, 28.12.2007 kl. 21:49
Langt síðan ég sagði þeim upp.
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 22:47
Hvers á maður að gjalda?
Páll Jóhannesson, 29.12.2007 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.