Er farsótt að ganga?

Skelfilegar fréttir berst eins og eldur í sinu um landið þvert og endilangt.

Upp er risinn draugur einn allsvakalegur. Árum saman hefur hann gengið undir nafninu Framsóknarflokkurinn og verið stjórnað af gráðugum fársjúkum spilafíklum. Eftir því sem fréttir herma hefur gripið um sig spilafíkn í þjóðfélaginu sem birtist í einhverjum 18% stuðningi við sukkið og svínaríið sem hefur viðgengist undanfarin 14 ár.

Dettur einhverjum heilvita manni í hug að þumalskrúfur verði losaðar af þingmönnum Framsóknarflokksins. Af hverju skyldu bæði Bjarni og Guðni fokkast upp af þinginu? Af hverju hefur verið svona mikil lausung innan Framsóknarflokksins? Það er ekki hægt að ætla það neinum þingmanni með sæmilega skynsemi að þola þær "kvalir" á sálinni sem fjármálasukkshlið framsóknar hengir þá í.

Þess vegna ráðlegg ég öllum hugsandi Íslendingum. Varist umfram allt að lengja líf þessa mesta ósóma sem þrifist hefur síðan land byggðist. Hættið að kalla yfir ykkur gamla gengið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband